miðvikudagur, maí 07, 2008

Sumar 2008







12 lið í fyrsta skipti á Íslandsmótinu í knattspyrnu, mikið gleðiefni fyrir okkur er höfum gaman af þessar íþrótt. Ég ætla að smella mér í spádómsgallann og sjá hvernig mótið endar.

Nokkrar vangaveltur hafa verið í blöðum og á netsíðum um hvernig þetta fer allt saman, veit ekki hvort það séu tilfinningarnar sem ráða hér för, en ég tel, í það minnsta, HK muni enda ofar á töflunni en menn er almennt að spá, vonandi Breiðablik í líka.


1. Valur
2. FH
3. Breiðablik
4. KR
5. ÍA
6. Fylkir
7. HK
8. Fram
9. Keflavík
10. Þróttur
11. Grindavík
12. Fjölnir

Óvissuþættirnir eru vissulega nýliðarnir, veit í raun ekkert um þá. HK á sínu öðrutímabili, Keflavík virkar eitthvað valtir og vængbrotnir (bara tilfinning út frá því hvernig þeir léku síðust 9 umferðirnar í fyrra) og svo er KR og ÍA svolítið óskrifað blað. Blikar hafa svosem aldrei staðið undir væntingum og hef ég alveg hætt að gera væntingar til míns æskufélags en læt það eftir mér núna og vona að þeir nái að jafna sinn besta árangur frá 1983.

3 Comments:

Blogger Pooran said...

Man eftir því að þetta ræddum við nú á Kópavogsvelli eitthvað í kringum ´86 eða svo, þ.e.a.s. fjölgun liða í fyrstu deild. Þurftum bara að bíða 22 ár eftir að það yrði að veruleika. KSÍ alltaf jafn fljótir að bregðast við. Gaman að sjá þig aftur á blogginu kalllllllinn minn.

10:19 f.h.  
Blogger BbulgroZ said...

Hey!! Ég er ekki kadddl!! : )

En já þetta hefir verið í umræðunni lengi hjá okkur piltunum, en loks er komið að því.

5:01 e.h.  
Blogger BbulgroZ said...

Uss held að þessi spá mín haldi ekki....Kebblvík verður eitthvað ofar í það minnsta og Fjölnir eru í rosa stuði, Blikar og HK verða að taka sig saman í andlitinu sínu ef þeir ætla að vera með, BÆNG!!

4:55 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home