mánudagur, júlí 31, 2006

Sigurrós


Hljómsveitin Sigurrós er aldeilis að gera það gott víða um veröldina okkar og það er vel. En ég hef reynt ítrekað að hlusta á þessa hljómsveit, en ekki borið árangur sem erfiði. Í gær voru tónleikarnir á Klambratúninu, blíðsköp í veðri sem skemdu ekki fyrir góðri stemningu.

Ég á ágætis heimabíókerfi, pioneer gerðar, svo ég horfði á tónleikana í sjónvarpinu, þökk sé RÚV. Ég stillti á flestar þær stillingar sem mögulega eru til á tækinu svo að tónarnir næðu nú fljóta til mín sem ég væri á staðnum. Tónleikarnir byrjuðu og allt virkaði vel, hljóðið gott og myndataka ágæt(ekki sömu gaurarnir og taka upp fótboltaleikina!!!) En allt kom fyrir ekki, ég gafst upp eftir 48 mín. Frábærir kaflar oft sem fljóta frá þeim Sigurrósarstrákum, en þeir halda sama hljómnum og kaflanum full lengi í senn fyrir minn smekk. Svo verður breimið í Jónsa söngvara oft ansi leiðigjarnt. Mín skoðun er nú sú að sumir kaflarnir eru mjög flottir og heillandi en það væri hægt að sjóða ágætis 3-4 lög út úr öllum þeim lögum sem þeir hafa gert.

En gaman að svona framtaki eins og í gær fyrst það verða engir tónleikar á hafnarbakkanum á menningarnótt.

3 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Er nú NÆSTUM alveg sammála þér með að lögin séu soldið stundum AÐEINS kannski of langdregin... fíla samt Sigurrós... Sá hluta af tónleikunum á Klambratúninu og restina á RÚV... var nú flottara að vera á staðnum sko...

4:15 e.h.  
Blogger Bjarney Halldórsdóttir said...

Ég er algjörlega sammála þér Arnar. Hef svo sem ekki mikið lagt mig fram um að hlusta á þá, en hef staðið mig að því að skipta um rás í útvarpinu fljótlega eftir að lögin þeirra byrja að hljóma. Fæ þunglyndistilfinningu eða eitthvað í þá áttina við að hlusta á þá.

1:48 f.h.  
Blogger BbulgroZ said...

Já maður stendur sig oft að þvi að hnýta snöruhnútinn alveg án þess að fatta það ef maður klárar heillt lag með þeim : )

En ég býð Irpu velkomna hér til leiks :)

6:17 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home